Fréttir

Skíðadagur

Í dag var skíðadagur hjá yngra stiginu og fór 1. -4. bekkur í Tindaöxl og 5. -7. bekkur í Skarðsdalinn. Veðrið lék við mannskapinn með logni, sól og smá þokulæðing. Leikgleðin réði ríkjum í dag og laðaði fram bros á vör hjá mörgum. Myndir úr Tindaöxl eru komnar inn hér og vonandi berast myndir úr Skarðsdalnum síðar.  
Lesa meira

Skólahreysti

  Fyrr í mars tók Grunnskóli Fjallabyggðar þátt í norðurlands undanriðli í Skólahreysti og kepptu eftirfarandi nemendur: Jón Áki Friðbjörnsson og Marín Líf Gautadóttir í hraðaþraut, Sara María Gunnarsdóttir í ambeygjum og hreystigreip Kristinn Freyr Ómarsson í upphífingum og dýfum. Keppendur stóðu sig með stakri prýði og höfnuðu í 5. sæti. Aðrir nemendur á unglingastiginu byrjuðu daginn í skautahöll Akureyrar þar sem þeir spreyttu sig á skautum áður en þeir hvöttu sitt fólk áfram í Skólahreysti.
Lesa meira

Skólaakstur fellur niður

Skólaakstur fellur niður í dag föstudaginn 21. mars
Lesa meira

Stóra upplestrarkeppnin

Miðvikudaginn 19. mars fór Stóra upplestrarkeppnin fram í Bergi á Dalvík. Fjórir keppendur úr 7. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar tóku þátt og stóðu sig með miklum sóma. Rut Jónsdóttir lenti í 2. sæti og Anna Día Baldvinsdóttir lenti í 3. sæti. Guðmundur Ingi Jónatansson kennari sá um að undirbúa keppendur fyrir keppnina. Nemendur 7. bekkjar fóru með á Dalvík til að fylgjast með og styðja bekkjarfélaga sína. Frábær árangur hjá okkar nemendum. Fleiri myndir frá Bergi má sjá hér.
Lesa meira

Skólaakstur fellur niður í dag

Skólaakstur fellur niður í Fjallabyggð í dag fimmtudaginn 20. mars vegna óveðurs og ófærðar. 
Lesa meira

Byggingaframkvæmdir ganga vel

Framkvæmdir við nýbyggingu skólans við Norðurgötu ganga vel og eru á undan áætlun. Lítil sem engin truflun hefur orðið af framkvæmdunum og verða nemendur lítið varir við að verið sé að byggja við skólahúsið. Stefnt er að því að byggingin verði tilbúin næsta haust. Það er Tréverk á Dalvík sem sér um framkvæmdina. Fleiri myndir má sjá í myndaalbúmi.
Lesa meira

Mottumars

Þessar glæsilegu konur mættu prúðbúnar til vinnu til þess að sýna samstöðu með baráttunni gegn krabbameini. Bara flottastar.
Lesa meira

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Undirbúningur Stóru upplestrarkeppninnar hófst á degi íslenskrar tungu 16. nóvember s.l. og er tilgangur keppninnar að vekja athygli og áhuga á upplestri og vandaðri framsögn. Keppnin er ætluð nemendum 7. bekkjar um land allt og hafa nemendur okkar verið duglegir að æfa sig í vetur. Í gær fór fram undankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina þar sem valið var 4 fulltrúa fyrir hönd skólans til að taka þátt í lokakeppninni  sem fram fer í Bergi á Dalvík þann 19. Mars n.k.  Dómnefndina skipuðu þau Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir aðstoðarskólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga, Kristinn Reimarsson, markaðs- og menningarfulltrúi Fjallabyggðar og Guðný Pálsdóttir fyrrverandi kennari við Grunnskóla Siglufjarðar. Nemendur sem munu keppa fyrir hönd GF í Stóru upplestrarkeppninni eru: Anna Día Baldvinsdóttir Álfheiður Birta Þorsteinsdóttir  Hólmfríður Sturludóttir Rut Jónsdóttir  varamaður Árni Haukur Þorgeirsson. Hægt er að sjá fleiri myndir af undankeppninni hér.
Lesa meira

7. bekkur fór í Reykjaskóla

Síðustu viku eyddi 7. Bekkur í skólabúðunum Reykjaskóla og láta þau vel af dvöl sinni þar. Á heimasíðu skólabúðanna má sjá myndir af nemendum og greinilegt að líf og fjör hefur einkennt vist þeirra þar. Myndir úr skólabúðunum má sjá hér.
Lesa meira