Ánægjuleg heimsókn

Í morgun fengu yngri deildir skólans ánægjulega heimsókn. Fjórir ungir og efnilegir harmoníkuleikarar frá Dalvík litu inn á báðar starfsstöðvar ásamt kennara sínum, Ave Tonison, og léku nokkur lög fyrir nemendur.  Var þeim mjög vel tekið og dáðust nemendur að færni þeirra á hljóðfærið.