09.09.2014
Allir með í fjallgöngu!
Þriðjudaginn 9. september er fyrirhugað (ef veður verður skaplegt) að fara ásamt
grunnskólanemendum í fjallgöngu í Fjallabyggð. Ákveðið hefur verið að bjóða bæjarbúum með í
gönguferðirnar. Þær eru miserfiðar og þyngjast eftir aldri nemenda. Gönguferðirnar Siglufjarðarmegin hefjast kl. 9:30 og Ólafsfjarðarmegin kl.
8:30. Þeir sem hyggjast slást í för þurfa sjálfir að koma sér á upphafsstað göngu.
Gönguleiðir
1.-4.bekkur Siglufirði: Ríplar – frá skólahúsi Siglufirði
1.-4.bekkur Ólafsfirði: Kvíabekkjardalur – frá skólahúsi
Ólafsfirði (sameinast í
bíla)
5.bekkur: Brimnesdalur –frá skólahúsi Ólafsfirði
6.bekkur: Burstabrekkudalur – frá skólahúsi
Ólafsfirði
8. 9. og 10.bekkur: Siglufjarðarskarð – frá afleggjara að Hraunum í Fljótum og
endað á Siglufirði
Með fyrirvara um breytingar. Upplýsingar á
www.grunnskoli.fjallabyggd.is