- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
- Matseðill og skráning í mat
Í gær fóru nemendur í 9. og 10. bekk í starfamessu í Háskólanum á Akureyri. Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir komu saman á einum stað til að kynna sig og störf sín fyrir elstu nemendum grunnskóla, háskólanemum og öðrum áhugasömum.
Þetta var í sjöunda sinn sem starfamessa er haldin af náms- og starfsráðgjöfum grunnskólanna á Akureyri í samstarfi við HA og SSNE. Markmið hennar var að kynna fjölbreytt störf og veita nemendum betri innsýn í framtíðarmöguleika sína.
Um 800 grunnskólanemendur sóttu viðburðinn og nýttu tækifærið til að kynna sér fjölbreytt fyrirtæki og störf.
Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150 |
Skrifstofa skólans er opin frá
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda á Mentor eða í síma 464-9150/ ritari@fjallaskolar.is
Kt. 580706-0880