112 dagurinn - brunaæfing

Að þessu sinni hitti 112 dagurinn á vetrarfí hjá okkur svo í dag héldum við upp á daginn með brunaæfingu bæði við Norðurgötu og Tjarnarstíg og  gekk það nú aldeilis vel. Við fengum að venju góða gesti bæði sjúkrabíl og bíla frá slökkviliðinu og fengu nemendur að skoða og prufa græjurnar. Hægt er að sjá myndir frá deginum hér.