10. bekkur í starfskynningu

Í þessari viku er hin áralega starfskynning 10. Bekkinga. Nemendur fara í ýmis fyrirtæki í Fjallabyggð og vinna í fjóra daga á tveimur starfsstöðvum.  Úrval starfsstöðva er fjölbreytt og spennandi og þykir m.a. grunn- og leikskólinn spennandi staður fyrir starfskynningu. Í morgun mættu fjórir 10. bekkingar við Tjarnarstíginn og  munu þeir aðstoða við kennslu yngri nemenda.