10. bekkur í starfskynningu

Tinna Kristjáns í starfskynningu við Tjarnarstíg
Tinna Kristjáns í starfskynningu við Tjarnarstíg

Þessa vikuna hafa nemendur í 10. bekk farið í starfskynningu í ýmis fyrirtæki í Fjallabyggð. Slíkt samstarf við samfélagið er frábært tækifæri fyrir nemendur til að kynna sér hin ýmsu störf sem í boði eru og skemmtilegt uppbrot á hefðbundnu skólastarfi.