10. bekkur heimsækir MTR

Í síðustu viku fóru nemendur 10. bekkjar í heimsókn í MTR og kynntu sér nám, námsframboð og aðstöðu í skólans. Nemendur voru áhugasamir og duglegir að spyrja um skólann og námsleiðirnar. Svo var brugðið á leik og nemendum skipt í nokkra hópa og farið í ratleik um skólann. Nemendur áttu t.d. að finna starfsmann með skegg og gleraugu, rauðkæddan sarfsmann, málverk og Idolstjörnu. Þetta var skemmtilegur leikur og unnu krakkarnir vel saman. Hægt er að sjá fleiri myndir hér.