Skólaakstur

Nemendum 6. – 10. bekkjar er ekið frá Siglufirði kl. 7:40 til Ólafsfjarðar og til baka að
skóladegi loknum. Biðstöð á Siglufirði er við Norðurgötu og í biðskýli við Snorrabraut.

Nemendum 1. – 5. bekkjar á Ólafsfirði er ekið kl. 8:05 til Siglufjarðar og til baka að skóladegi
loknum. Biðstöð á Ólafsfirði er við Tjarnarstíg.

Tímatafla til útprentunar

Reiknað er með að nemendur fari heim með skólarútu. Ef annar háttur er hafður á eru
nemendur á ábyrgð forráðamanna. Ætlast er til að forráðamenn yngri nemenda láti ritara vita
fari þeir ekki með skólarútu.

Bílstjóri skólarútu er Guðmundur Skarphéðinsson -  sími: 892 1846

Fyrirtækið Suðurleiðir er þjónustuaðili. Aksturstafla er unnin í samvinnu við Menntaskólann á
Tröllaskaga og félagsmiðstöðina Neon.