- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
Aðsetur skólavistunar er í skólahúsinu Norðurgötu á Siglufirði.
Skráning fer fram hjá skólaritara í síma 464-9150
Staðfest skráning gildir fyrir einn mánuð í senn. Tilkynna þarf fyrir 20. hvers mánaðar ef breyting verður næsta mánuðinn.
Markmið starfsins er að sameina uppeldi og menntun við hæfi, að þeim líði vel og fái notið sín í frjálsum leik, þar sem sá tími sem þau dvelja er í raun frítími þeirra.
Skólavistun er í boði fyrir nemendur 1. – 4. bekkjar. Starfstími þjónustunnar fylgir grunnskólaárinu. Foreldrar kaupa skólavistun mánuð fram í tímann og þurfa að láta vita fyrir 20. hvers mánaðar. Mjög mikilvægt er að fylgja þeirri reglu því greitt er fyrirfram fyrir þjónustuna.
Sími í skólavistun er 8699150
Dagskrá er í umsjón Megan Phoebe Iley meganph@fjallaskolar.is
Athugið að breytingar geta orðið á dagskrá!
Útivera fer fram á lóðum grunnskólans. Ef veður er mjög vont þá er frjáls leikur inni.
Mikilvægt er að börnin séu klædd eftir veðri og hafi aukaföt í skólanum.
Hressing: Ávextir, brauð eða kex með fjölbreyttu áleggi. Mjólk eða vatn til drykkjar.
Frjáls leikur: Börnin velja viðfangsefni inni eða úti eftir veðri.
Gjaldskrá skólavistunar og mötuneytis
Systkinaafsláttur er veittur vegna barna á forræði forráðamanns/manna sem hérsegir, að því tilskildu að þau eigi öll lögheimili í Fjallabyggð.
− 50 % afsláttur vegna 2. barns.
− 75% afsláttur vegna 3. barns.
− Ekki er veittur afsláttur af fæðisgjaldi.
− Afsláttur er tengdur milli leikskóla og lengdra viðveru. Yngsta barn greiðir fullt gjald.