Fréttir

5. bekkur safnaði fyrir ABC barnahjálp

Dagana 25 mars -10 apríl tók 5. bekkur í Grunnskóla Fjallabyggðar þátt í söfnuninni,“Börn hjálpa börnum“en það er söfnun sem 5. bekkur tekur þátt í ár hvert  og er á vegum ABC barnahjálp. Krakkarnir voru einstaklega dugleg og söfnuðu þau hvorki meira né minna en 195.805 krónum. Enn ánægjulegra er að þetta er hugsanlega met frá upphafi söfnunar hjá ABC þ.e. að hvert barn í 5.bekk safnaði 12.230 kr!! Það var mikið á sig lagt og baukarnir fylltir af mikilli elju.   5.bekkur þakkar öllum þeim sem tóku vel á móti þeim þegar bankað var á hurð þeirra og beðið var um aðstoð til hjálpar bágstöddum börnum  úti í heimi. Bestu þakkir    
Lesa meira

Umhverfisdagur

Í dag er umhverfisdagur og af því tilefni fóru nemendur við Tjarnarstíg út um miðjan morgun og gerðu fínt í næsta nágrenni við skólann. Það var þó heldur fámennur hópur þar sem meirihluti nemenda við Tjarnarstíg er á Andrésar Andarleikunum. Afraksturinn lét þó ekki á sér standa og að launum var svo boðið upp á ýmsa skemmtilega afþreyingu það sem eftir var skóladags. Fleiri myndir af deginum er hægt að sjá hér.
Lesa meira

Úrslit úr forkeppni Stærðfræðikeppni 9. bekkinga

Forkeppni Stærðfræðikeppni 9. bekkinga 2014 var haldin í mars. Keppnin er samstarfsverkefni FNV og MT við grunnskóla á Norðurlandi vestra, Fjallabyggð og Dalvík. Að þessu sinni tóku um 170 nemendur þátt. Þrír nemendur við skólann voru í 15 efstu sætunum en það eru þau: Björn Vilhelm Ólafsson, Sara María Gunnarsdóttir og Þorgeir Örn Sigurbjörnsson Við óskum þessum keppendum innilega til hamingju með árangurinn. Úrslitakeppnin fer síðan fram í maí.
Lesa meira

Vorhátíð í gær og páskafrí

Í gær var haldin vorhátíð nemenda í 1. - 7. bekk fyrir fullum sal í Menningarhúsinu Tjarnarborg. Nemendur stóðu sig með stakri prýði og gerðu kvöldið einstaklega skemmtilegt. Kærar þakkir til allra þeirra sem komu og áttu með okkur góða stund. Hægt er að sjá myndir frá nemendasýningunni um morguninn hér. Framundan er páskafrí og hefst skóli aftur þriðjudaginn 22. apríl. Gleðilega páska
Lesa meira

Vorhátíð

VORHÁTÍÐ Grunnskóla Fjallabyggðar   Fimmtudaginn 10. apríl kl. 18 verður vorhátíð 1.-7. bekkjar haldin í Tjarnarborg í Ólafsfirði   Aðgangseyrir: Nemendur 8.-10. bekkjar 500 krónur 16 ára og eldri 1500 krónur   Rúta fer frá Torginu kl. 17:30 og til baka að sýningu lokinni.   Allir velkomnir!
Lesa meira

Niðurstöður úr Olweusarkönnun

Grunnskóli Fjallabyggðar hefur það að markmiði að starfa að einurð gegn einelti og vinnur því samkvæmt Olweusaráætlun. Einn hluti Olweusaráætlunarinnar er að leggja fyrir nemendur 5 – 10 bekkjar rafræna nafnlausa könnun um eineltisvandann o.fl. í formi sérhannaðs spurningalista. Þessi könnun er lögð fyrir árlega og er ætlun hennar að finna einelti og koma í veg fyrir það.  Hér má sjá niðurstöður síðustu eineltiskönnunar.           
Lesa meira

Dagur barnabókarinnar - heimsókn höfundar

Örlygur Kristfinnsson, höfundur bókarinnar Saga úr Síldarfirði heimsótti 1.- 4. bekk. Bókin er verkefni í Byrjendalæsinu þessa viku og eru krakkarnir að vinna ýmis verkefni sem tengjast sögunni.
Lesa meira

Skíðadagur í Skarðsdal

Nú eru komnar inn myndir frá skíðadeginum í Skarðsdal, þær má finna hér.
Lesa meira

Skíðadagur

Í dag var skíðadagur hjá yngra stiginu og fór 1. -4. bekkur í Tindaöxl og 5. -7. bekkur í Skarðsdalinn. Veðrið lék við mannskapinn með logni, sól og smá þokulæðing. Leikgleðin réði ríkjum í dag og laðaði fram bros á vör hjá mörgum. Myndir úr Tindaöxl eru komnar inn hér og vonandi berast myndir úr Skarðsdalnum síðar.  
Lesa meira