Fréttir

Göngum í skólann

Grunnskóli Fjallabyggðar tekur nú þátt í átakinu Göngum í skólann sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands , Umferðarstofa, Ríkislögreglustjórinn, Menntamálaráðuneytið, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Lýðheilsustöð og Heimili og skóli standa að. Þetta er í þriðja skiptið sem skólar á Íslandi taka þátt í þessu alþjóðlega verkefni.  Verkefninu er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga, hjóla, fara á línuskautum eða á annan virkan hátt til og frá skóla.   Kennarar yngri deildanna hér í skólanum munu halda utan um skráningu þeirra sem koma gangandi í skólann næstu 2 vikurnar og að þeim loknum munu verða afhentar viðurkenningar til þeirra bekkja sem best hafa staðið sig. Við hvetjum því foreldra til að taka átakinu vel og virkja börn sín til þátttöku. Nánari upplýsingar um átakið má finna á síðunni www.gongumiskolann.is  
Lesa meira

Skólamötuneyti

Í vetur verður boðið upp á skólamötuneyti. Bréf til foreldra fór í póst s.l. fimmtudag. Í því voru upplýsingar um skólabyrjun og aðgangsorð að www.matartorg.is. Hægt er að hefja skráningu nemenda í mat strax.  Gengið hefur verið til samninga við Hótel Brimnes í Ólafsfirði og Allann Siglufirði um framleiðslu á skólamáltíðum. Verð á máltíð er óbreytt kr. 380.
Lesa meira

Foreldrafundir

Kynningarfundir fyrir foreldra um skipulag nýja skólans sem til stóð að halda 24. og 25. ágúst verða færðir til. Fundur fyrir foreldra nemenda í 1.-10. bekk Ólafsfirði verður fimmtudaginn 26. ágúst kl. 18 í skólahúsinu við Tjarnarstíg. Fundur fyrir foreldra nemenda í 1.-10. bekk á Siglufirði verður mándaginn 30. ágúst kl. 18 í skólahúsinu við Hlíðarveg. Á fundunum verður farið yfir skipulag starfsstöðva skólans og skólaakstur fyrir nemendur í unglingadeild.
Lesa meira

Innkaupalistar 2010-2011

Innkaupalistar eru nú komnir á netið fyrir alla bekki. Sjá innkaupalista hér til vinstri á síðunni.
Lesa meira

Skólabyrjun - kynningarfundir fyrir foreldra

Nýr grunnskóli í Fjallabyggð hefur verið stofnaður og tekur hann við af Grunnskóla Ólafsfjarðar og Grunnskóla Siglufjarðar.
Lesa meira

Upplýsingar um nýjan skóla

Upplýsingar um skipulag, stjórnendur, umsjónarkennara og bekkjadeildir er að finna undir tenglinum Um skólann í tenglalínu hér að ofan. Upplýsingar um sýn skólastjórnenda og áherslur nýs skóla er að finna undir tenglinum Skólanámskrá í tenglalínu hér að ofan.
Lesa meira