- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
8. nóvember er í annað sinn haldinn sérstakur baráttudagur gegn einelti hér á landi. Landsmenn eru hvattir til að standa saman gegn einelti í samfélaginu, ekki síst í skólum og á vinnustöðum. Allir eru hvattir til að leggja sitt að mörkum til að einelti fái ekki þrifist í samfélaginu og beina sjónum að jákvæðum samskiptum, skólabrag og starfsanda.
Sýnum hvort öðru gagnkvæma virðingu í samskiptum, verum góð fyrirmynd og eyðum einelti. Vinnueftirlitið hefur gefið út veggspjald og þar er að finna 10 ráð til að vinna gegn einelti á vinnustað.
Á baráttudegi gegn einelti eru allir hvattir til að skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti, sem er aðgengilegur á heimasíðunni www.gegneinelti.is
Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150 |
Skrifstofa skólans er opin frá
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda á Mentor eða í síma 464-9150/ ritari@fjallaskolar.is
Kt. 580706-0880