Vilt þú vekja athygli á verðugu verkefni eða metnaðarfullu viðfangsefni?

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, verða afhent í 16. sinn við athöfn í  Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 24. maí næstkomandi.   

Heimili og skóli – landssamtök foreldra óska eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2011 frá einstaklingum, félögum eða hópum sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum, sem stuðla að eflingu skólastarfs og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins. Tilnefningar óskast sendar á rafrænan hátt með því að fylla út eyðublað á www.heimiliogskoli.is. Þar er jafnframt að finna leiðbeiningar og nánari upplýsingar. Fólk er hvatt til að líta eftir og tilnefna verðug verkefni í sínu nærumhverfi.

 

Síðasti skiladagur tilnefninga er fimmtudagur 28. apríl 2011.