Skólastarf verður með eðlilegum hætti frá og með þriðjudeginum 5.maí

Nú verða kaflaskil hjá okkur í skólanum og breytingar á skólastarf frá og með þriðjudeginum 5. maí en mánudagurinn 4. maí er skipulagsdagur hjá okkur. Takk fyrir samstarfið á þessum sérstaka tíma.

Skólaakstur og starfið í skólanum verður með eðlilegum hætti, þ.e. eins og var fyrir “covid”. Ljóst er að sá tími sem við höfum upplifað undanfarið hefur verið mjög sérstakur og haft miklar breytingar í för með sér fyrir alla. Nemendur unglingastigs sem hafa alfarið verið í fjarnámi koma nú til vinnu sinnar í skólahúsið samkvæmt stundaskrá og verður það þeim vonandi öllum kærkomið og ánægjulegt.

Hlökkum til að sjá alla!