Sænskir nemendur í heimsókn

Sænskir nemendur með íslensku fjölskyldunum sem þeir búa hjá á meðan dvöl þeirra stendur
Sænskir nemendur með íslensku fjölskyldunum sem þeir búa hjá á meðan dvöl þeirra stendur

Þessa vikuna hafa sex sænskir nemendur dvalið í skólanum hjá okkur. Þeir hafa búið hjá fjölskyldum nemenda í 10. bekk. Um er að ræða eTwinning verkefni milli grunnskólans hér og Rödebyskolan í Karlskrona. Verkefnið hefur yfirskriftina Värdegrundsarbete þar sem nemendur skoða hvaða leiðir eru notaðar til að vinna gegn einelti í skólunum. Kennarar sem stýra verkefninu eru Halldóra Elíasdóttir umsjónarkennari í 10. bekk og Ómar H. Sigurðsson kennari í Karlskrona ásamt Christina Engman.

Næsta vor fara okkar nemendur í samskonar heimsókn til þeirra.