Ólympíuhlaupi ÍSÍ hjá 1.-5.bekk

Ólympíuhlaup ÍSÍ hefur nú tekið við af Norræna skólahlaupinu sem hefur verið hluti af skólaíþróttum síðan 1984. Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Hlaupið er með sama sniði og geta nemendur valið á milli vegalengdanna 2,5 km, 5 og 10 km.

Nemendur í 1. – 5. bekk, tóku þátt í hlaupinu og stóðu sig mjög vel, hlupu samtals 410 km. Sem verður að teljast frábær árangur. Allir voru svo jákvæðir og vildu gera sitt allra besta.