Norræna skólahlaupið hjá 1.-7. bekk

Í morgun hljóp 1.-7. bekkur Norræna skólahlaupið. 5.-7. bekkur hljóp á Ólafsfirði í ratleik þar sem þeir söfnuðu sér stigum í skemmtilegum leikjum á hverri stöð. Að hlaupi loknu var svo farið í sund.

1.-4. bekkur hljóp saman á Siglufirði og var hlaupið einnig í ratleikjarformi þar sem afþreyjing beið nemenda á hverri stöð. Sólin lék við nemendur þennan hreystidaginn og er hægt að sjá myndir frá deginum hér.