Lestur gefur lífinu lit - Verðlaunatexti frá 4. og 5.bekk Grunnskóla Fjallabyggðar!

IBBY á Íslandi efndi í fyrsta sinn til samkeppni um lestrarhvetjandi texta á veggspjaldið. Verðlaunatextinn kom frá nemendum í 4. og 5. bekk í Grunnskóla Fjallabyggðar á Siglufirði. Þau höfðu lagt höfuðin í bleyti og sendu inn margar tillögur að texta á veggspjaldið. „Lestur gefur lífinu lit“ var sá texti sem veitti Birgittu Sif innblástur fyrir veggspjaldið.

Verðlaunahafarnir fengu að launum 25 þúsund krónur og efndu til snúðaveislu í tilefni afhendingu verðlaunanna og útgáfu veggspjaldsins.

Veggspjaldið hefur verið sent til allra grunnskóla landsins þar sem það prýðir veggi skólasafnanna ásamt veggspjöldunum frá árunum 2019 og 2020.