Lestur er bestur

Læsisteymi minnir á:
Lestur er lyk­il­inn að öllum öðrum lyklum hvað varðar nám og þekk­ing­ar­leit. Lestur gefur okkur einnig mögu­leika á að öðl­ast gleði við að lesa bækur af ýmsum toga. Bók­ar­lestur verður þess vegna mik­il­vægur til að efla færni og þekk­ingu á mörgum svið­um.

Í Grunnskóla Fjallabyggðar er stuðst við starfsaðferðir byrjendalæsis. Byrjendalæsi er byggt á kenningu lestrarfræða um áhrifarík og vönduð vinnubrögð. Áhersla er lögð á að kennsla í lestri feli í sér samþætta nálgun sem nái til allra þátta móðurmálsins. Gert er ráð fyrir því, að börnum sem hafa ólíka færni í lestri sé kennt hlið við hlið og áhersla lögð á hópvinnu um leið og einstaklingsþörfum er mætt.

Hér er að finna áhugavert og skemmtilegt myndband í sambandi við lestur. 

www.lesummeira.is (ýtið á Sjá meira þá kemur upp stutt myndband)

En hvers vegna skiptir máli að börn öðlist áhuga á að lesa bækur þegar nóg er af öðru lesefni út um allt? Einfalda svarið er að áhugi á bóklestri tengist betri lesskilningi sem er undirstaða alls náms.

Í stuttu máli sagt gengur börnum sem hafa gaman af því að lesa bækur betur í skólanum.

Langa svarið er að bóklestur eykur víðsýni og umburðarlyndi, kennir börnum að setja sig í spor annarra og átta sig á skráðum og óskráðum reglum samfélagsins, lestur eflir málþroska, sköpunargáfu, ímyndunarafl  og orðaforða. Svo er bóklestur líka svo skemmtilegur, kærkomið athvarf frá amstri dagsins. (tekið af www.lesvefurinn.hi.is)