Hertar sóttvarnarreglur

 

Nú er orðið ljóst að frá og með miðnætti gilda hertar aðgerðir varðandi sóttvarnarreglur í samfélaginu. Eins og staðan er í dag er ekki alveg vitað hvaða áhrif þetta mun hafa á skólastarf næstu vikurnar en nokkuð víst er að það skipulag sem við keyrðu sl. vor gæti komið til aftur nú. Við eigum von á frekari reglugerð frá yfirvöldum um helgina og því ekki hægt að gefa neitt ákveðið út á þessari stundu. Við munum láta ykkur vita um leið og okkur berast leiðbeiningar í hendur hvernig skólahaldi verður háttað.

Við biðjum ykkur um að fylgjast vel með tilkynningum frá skólanum.

Með bestu kveðju. Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri.