Fræðsla fyrir nemendur og foreldra um netnotkun

Fræðsla um netnotkun verður þriðjudaginn 27. febrúar næstkomandi  á vegum Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar. Ólína Freysteinsdóttir fjölskyldumeðferðarfræðingur og SAFT fyrirlesari sér um fræðsluna í samstarfi við Heimili og skóla, landssamtök foreldra.  

Fræðslan verður fyrir nemendur í 4.-10. bekk á skólatíma og fyrir foreldra um kvöldið. (Foreldrar geta komið í bekkjarfræðslu ef þeir komast ekki um kvöldið.)

Fræðsla á Siglufirð:

4. og 5. bekkur kl. 9.00 -9.30

 

Fræðsla á Ólafsfirði

6. og 7. bekkur kl. 10.40-11.40

8.-10. bekkur 12.10 – 13.10

 

Fræðsla til foreldra

Fyrirlestur fyrir foreldra verður í Hrafnavogum í Menntaskólanum við Tröllaskaga kl. 20.00.