Dagur stærðfræðinnar var haldinn hátíðlegur

Dagur stærðfræðinnar er haldinn hátíðlegur fyrsta föstudag í febrúar ár hvert. 

Markmið með Degi stærðfræðinnar er annars vegar að vekja nemendur og sem flesta aðra til umhugsunar um stærðfræði og hlutverk hennar í samfélaginu og hins vegar að fá nemendur til að koma auga á möguleika stærðfræðinnar og sjá hana í víðara samhengi.

Nemendur við Norðurgötu héldu daginn heldur betur hátíðlegan og einblíndu sér að stærfræðinni í allan dag. Í skólanum voru ýmsar stöðvar í gangi þar sem nemendur áttu möguleika að spreyta sig í skák, stærfræðikeppni í gegnum Kahoot, lita eftir tölum og stærðfræðidæmum, skrifa upp tölur, skiptast á að fara með margföldunartöfluna, bingó, lego, kubbar, vinnubækur og fleira. Frábær dagur.