Ást gegn hatri

Ást gegn hatri er yfirheitið á fyrirlestrum þeirra feðgina Selmu Bjarkar og Hermanns Jónssonar en þau ætla að heimsækja okkur 25. og 26. febrúar.

Hermann kemur fimmtudaginn 25. febrúar kl 20:00 í Tjarnarborg. Hvetjum við alla foreldra, forráðamenn og bara alla þá sem hafa áhuga á að hlusta á hann til að mæta.

• Fyrirlestur Hermanns kallast Foreldrar með markmið. Þar ræðir Hermann við foreldra um það hvernig hann hefur markvisst byggt Selmu upp og kennt henni að takast á við eineltið á einstakan hátt. Hermann talar um hvernig hann hefur sett sér markmið í uppeldinu og hvernig hann vinnur að því að ná þeim markmiðum. Fyrirlesturinn er EKKI eingöngu fyrir foreldra barna sem hafa lent í einelti, þetta er fyrirlestur fyrir ALLA foreldra þar sem rætt er um uppeldi, skólamál og einelti. Þetta er frábær fyrirlestur sem á erindi við alla foreldra.

Selma ætlar að heimsækja krakkana í 1.-10. bekk föstudaginn 26. febrúar. Biðjum við alla foreldra að hvetja börnin sín til að hlusta á hana með opnum huga.

• Fyrirlestur Selmu, þar sem hún ræðir við nemendur um það mikla einelti sem hún hefur glímt við og hvernig hún hefur unnið úr þeirri reynslu. Fyrirlestur Selmu kallast Ást gegn hatri og tekur um eina kennslustund.

Fyrirlestrarnir eru í boði Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar.