Fimmtudaginn 29. mars verður hin árlega Vorskemmtun 1. - 7. bekkjar á Siglufirði haldin í Allanum. Sem fyrr verða tvær sýningar í boði. Fyrri
sýningin er kl. 16.00 og hin síðari kl. 20.00.
Boðið verður upp á fjölbreytt skemmtiatriði; dans, söng, leik og létt grín.
Aðgangseyrir er 1500 kr. fyrir 16 ára og eldri og 500 kr. fyrir 13-15 ára.