Upplýsingar um kórónuveiru Covid-19. Mötuneyti grunnskólans.

Hér að neðan eru upplýsingar frá Almannavörnum og aðgerðir skólans til að hindra smitleiðir í mötuneyti.

Gripið hefur verið til margvíslegra varúðarráðstafana til að hefta útbreiðslu kórónaveirunnar COVID-19. Eitt af því sem huga þarf að eru mötuneyti leik- og grunnskóla.
Almennt er smitleið kórónaveirunnar talin vera snerti- og dropasmit, sem er svipuð smitleið og í inflúensu. Kórónaveiran getur dreifst þegar smitaðureinstaklingur hóstar, hnerrar eða snýtir sér og hraustur einstaklingur andar að sér dropum/úða fráhonum. Einnig ef hendur hrausts einstaklings mengast af sýktum dropum/úða og hann ber þær svo upp að andliti sínu.
Ekki hefur verið staðfest að fólk geti verið smitandiáður en einkenni koma fram en sumir fá lítil sem enginn einkenni en geta þó verið smitandi. 

Veiran lifir í stuttan tíma á hörðum flötum utan líkamans (talið vera klukkustundir frekar en dagar). Þannig geta sameiginlegir snertifletir eins og eldhúsáhöld og vatnskönnur mögulega borið smit ef einhver veikur hnerrar eða hóstar á hlutina eða snertir þá með óhreinum höndum. Talið er öruggastað matur sé skammtaður af starfsmönnum skólanna, sem ættu að nota einnota hanska við vinnu sína. Lagt er til að stjórn skólans ræði og taki ákvörðunum nánari tilhögun.
Nauðsynlegt er að leggja áherslu á mikilvægihandþvottar og notkunar á handspritti. Misjafnt er eftir aldri og getu barna hversu vel þau þvo sér velum hendur.
Á vef embætti landlæknis er að finna ítarlegar upplýsingar  https://www.landlaeknir.is/.

Í Grunnskóla Fjallabyggðar munum við þurfa að gera smá breytingar í mötuneyti Tjarnarstígs en þar hafa nemendur skammtað sér sjálfir mat í hádeginu. Starfsmenn munu skammta mat og afhenda mataráhöld til að koma í veg smit og í mötuneyti yngri deildar mun starfsmaður skammta mat, afhenda mataráhöld og hella í glös.

Vonandi þarf þetta ekki að vara lengi en við förum eftir því sem okkur er ráðlagt í ljósi aðstæðna.