Opinn foreldrafundur fimmtudaginn 9. apríl kl. 20.00 í Tjarnarborg.

Opni foreldrafundurinn sem vera átti í febrúar verður haldin nk. fimmtudag í Tjarnarborg kl 20:00

Fyrirlesari er " Sigga Dögg", Sigríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur.

Fyrirlesturinn ber yfirskriftina "Kjaftað um kynlíf"  -   fyrirlestur fyrir fullorðna um hvernig megi ræða við börn og unglinga um kynlíf.

 Fyrirspurnir og spjall að fyrirlestri loknum.

Heimasíða Siggu Daggar er http://www.siggadogg.is/ en þar má lesa um Siggu Dögg og fyrirlestra hennar.

 Þann sama dag mun hún hitta nemendur í 8.-10.bekk með fyrirlestra.

  Foreldrafundurinn er samstarfsverkefni Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar, skólaráðs og grunnskólans.

Takið kvöldið frá.