Endurmenntun í Fjallabyggð

Mánudaginn 25. mars hittust kennarar af Eyjafjarðarsvæðinu sem hafa notað Byrjendalæsi í kennslu, hér á Siglufirði til að rifja upp og læra um notkun spjaldtölva í kennslu. Bitsboard var skoðað, en það er smáforrit sem hægt er að nota á fjölbreyttan hátt i skólastarfi. Það hentar vel til að efla orðaforða og hljóðkerfisvitund, æfa lestur og stafsetningu, vinna með orð og setningar, læra erlend tungumál og þjálfa ýmis atriði í stærðfræði.