Vorhátíð í gær og páskafrí

Í gær var haldin vorhátíð nemenda í 1. - 7. bekk fyrir fullum sal í Menningarhúsinu Tjarnarborg. Nemendur stóðu sig með stakri prýði og gerðu kvöldið einstaklega skemmtilegt. Kærar þakkir til allra þeirra sem komu og áttu með okkur góða stund. Hægt er að sjá myndir frá nemendasýningunni um morguninn hér. Framundan er páskafrí og hefst skóli aftur þriðjudaginn 22. apríl. Gleðilega páska