Stuðningsfulltrúa vantar til starfa

Grunnskóli Fjallabyggðar leitar eftir kröftugum og jákvæðum starfskrafti í vinnu frá og með næsta skólaári. Um er að ræða 75% - 100% stöðu stuðningsfulltrúa, í teymi sem vinnur með nemanda með fötlun. Starfið fer fram á báðum starfsstöðvum skólans, en þó aðallega í Ólafsfirði. Starfsmaður þar að treysta sér til að keyra á milli bæjarkjarna með nemandann.

Umsækjendur þurfa að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá komi þeir til greina í starfið.

Upplýsingar veitir Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri í síma 4649150 eða í gegnum netfangið erlag@fjallaskolar.is

Sótt er um starfið á netfangið erlag@fjallaskolar.is

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2023