Slysavarnardeild kvenna í Ólafsfirði skólanum veglega gjöf

Birgitta Þorsteins tók myndina
Birgitta Þorsteins tók myndina

Á dögunum færði Slysavarnardeild kvenna í Ólafsfirði skólanum veglega gjöf, tvö hjartastuðtæki til að hafa í skólahúsunum við Tjarnarstíg og Norðurgötu. Búið er að koma tækjunum fyrir í húsunum og starfsfólk hefur fengið fræðslu um notkun þeirra. Í dag komu svo fulltrúar slysavarnarkvenna í heimsókn í Norðurgötuna til að afhenda tækin formlega. Það var Foreldrafélag grunnskólans sem leitaði til slysavarnardeildarinnar vegna kaupa á tækjunum. Skólinn þakkar slysavarnarkonum í Ólafsfirði kærlega fyrir gjöfina sem eykur öryggi nemenda, starfsfólks og gesta skólans.