Laus staða skólaliða við Norðurgötu

Grunnskóli Fjallabyggðar
Grunnskóli Fjallabyggðar

Laus til umsóknar er 100% staða skólaliða við Grunnskóla Fjallabyggðar - í skólahúsinu við Norðurgötu á Siglufirði.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfið er fjölbreytt, þar sem mikil áhersla er lögð á mannleg samskipti bæði við fullorðna og börn. Skólaliði sinnir almennum þrifum tekur á móti nemendum að morgni, sér um gæslu í frímínútum og hádegishléi, bæði úti og inni og margt fleira.

Umsókn um starfið skal skilað, ásamt kynningarbréfi og ferilskrá, í tölvupósti á netfang Ásu Bjarkar Stefánsdóttur skólastýru, asabjork@fjallaskolar.is.

Umsóknarfrestur er til og með 11. september 2023.

Umsækjendur þurfa að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Nánari upplýsingar fást hjá skólastýru í síma 464 9150 eða 695 9998