Grunnskóli Fjallabyggðar í samstarfi við sænska og finnska skóla

Ribbaskolan í Grönna í Svíþjóð
Ribbaskolan í Grönna í Svíþjóð

Á haustdögum fóru átta starfsmenn úr Grunnskóla Fjallabyggðar í skólaheimsókn til Grönna í Svíþjóð. Það var liður í Nordplus samstarfsverkefni, sem hófst síðastliðið skólaár en þá fengum við til okkar hóp skólafólks frá Ribbaskolan í Grönna í Svíþjóð og Kuuhankaveden í Hankasalmi í Finnlandi. Tilgangur verkefnisins er að fylgjast með og greina hvernig kennarar í þessum löndum vinna við lestrarþjálfun á mismunandi aldursstigum og eiga samræður um hvernig auka megi lestur, lesskilning og ritfærni meðal nemenda. Við fengum að fylgjast með kennslunni á öllum stigum í Ribbaskolan og einnig heimsóttum við lítinn skóla, sem er í Visingsö, það er lítil eyja rétt hjá Grönna, einungis 25 mínútna sigling með ferju sem gengur á milli eins og strætó. Dásamlega falleg og áhugaverð eyja. 

 

Við hrifumst af því hvernig kennarar í sænska skólanum unnu með tungumálið, lestur og lesskilning. Námsgögnin vöktu einnig athygli okkar. Þar var unnið út frá sama texta en mismunandi þyngdarstig, sem hentaði öllum nemendum. Þá er mikil áhersla lögð á hljóðbækur/rafbækur og fá nemendur frían aðgang inn á þær.

Hver nemandi hefur sinn iPad til afnota en fær ekki að fara heim með hann fyrr en í 4. bekk. Kennslustundir voru langar en brotnar upp með hreyfingu í skólastofunni, nemendur réðu hvort þeir tóku þátt í þeirri hreyfingu eða tóku pásu við borð sitt. Það var margt sem við sáum sem við viljum taka upp hjá okkur og blanda inn í kennsluaðferðir okkar hér heima.

Ferðin var mjög áhugaverð og skemmtileg en staðurinn líka einstaklega fallegur og móttökurnar stórkostlegar. Veðrið lék við okkur í ferðinni og fórum við víða um. Við heimsóttum eplabúgarð, sigldum á vatninu Bunn og hrifumst af stórkostlegri náttúrufegurð landsins.

Nú í febrúar tekur svo finnski skólinn í Hankasalmi á móti hópi frá okkur og sænska hópnum í heimsókn. Eins og góðra gesta er siður þá færðum við skólanum gjöf en það var ljósmyndabók úr Fjallabyggð. Einnig langaði okkur til að færa sænsku og finnsku kollegum okkar eitthvað fleira úr heimabyggð og settum okkur því í samband við Primex sem var svo rausnarlegt að gefa okkur ChitoCare Beautyvörur til þess að færa þeim. Fyrir það kunnum við þeim bestu þakkir og óhætt að segja að það hafi vakið mikla lukku.

 

Finnskir og íslenskir starfsmenn í heimsókn í Svíþjóð.