Baráttudagur gegn einelti

Nemendur hjá græna blómakarlinum
Nemendur hjá græna blómakarlinum

Baráttudagur gegn einelti er 8. nóvember ár hvert og að sjálfsögðu tókum við þátt í honum. Markmið dagsins er að efna til umræðu, fræðslu og viðburða til að vinna gegn einelti, hvetja til jákvæðra samskipta og efla vináttu.

Nemendur skólans unnu skemmtileg verkefni í hópum þvert á bekki. Allir nemendur bjuggu til sitt blóm og hengdu á grænu persónuna sem er verndari gegn einelti. Það voru búin til vinabönd og veggspjöld, dansað og spilað og að lokum fóru allir hópar í hugleiðslu.

Þetta var frábær dagur og skemmtilegt uppbrot í skólastarfinu. 

Sjá fleiri myndir hér