Fréttir

Hamagangur á Óló

Í morgun var hamagangur á Ólafsfirði þar sem nemendur fengu að spreyta sig í ýmsum þrautum og leikjum. Veðrið hefði mátt vera betra en nemendur létu það ekki koma að sök og skemmtu sér ljómandi vel. Nú er er þetta skólaár að líða undir lok en á morgun er starfsdagur og á fimmtudaginn skólaslit. Hægt er að sjá myndir af deginum hér og einnig er búið að setja inn myndir frá bandýboltanumhér.
Lesa meira

Heimsókn á Síldarminjasafnið - lokavinna í Byrjendalæsi

 1. og 2. bekkur í vinnu á planinu.
Lesa meira

Skólaslit, hreystidagur og bandý/fótbolti

Í morgun fór fram gífurlega spennandi keppni við Tjarnarstíg milli kennara og nemenda í 7. bekk. Keppt var í bandý/fótbolta og eftir strangan og ótrúlega jafnan leik vann 7. bekkur leikinn með naumlegum mun.  8-4 Á morgun þriðjudag er síðasti skóladagurinn á skólaárinu. Hreystiteymi er búið að skipuleggja metnaðarfulla dagskrá  sem mun fara fram við Tjarnarstíg.   Síðasti akstursdagur skólabíls skv áætlun er í dag. Á þriðjudag verða ferðir vegna Hamagangs á Óló sem hér segir:    Kl. 9.20 frá Siglufirði, Hlíðarvegi og Norðurgötu       kl. 9.40 allir nemendur og starfsmenn skólans mæta við Tjarnarstíg    Kl. 12.30 frá Ólafsfirði   Kl. 13.15 frá ólafsfirði  Miðvikudag er starfsdagur  Fimmtudag er skólaslitadagurinn.    Kl. 11.00 Skólaslit fyrir 1.-7. bekk við Tjarnarstíg fara fram í íþróttahúsinu Ólafsfirði. Skólarútan fer frá Norðurgötu kl. 10.40 og til baka að athöfn lokinni.    Kl. 13.00 Skólaslit fyrir 1.-4. bekk við Norðurgötu fara fram í íþróttasalnum Norðurgötu.    Kl. 17.00 Skólaslit unglingadeildar fara fram í Siglufjarðarkirkju. Þar fer fram útskrift nemenda og afhending einkunna  8. og 9. bekkinga. Skóla-rútan fer frá Ólafsfirði kl. 16.40 og til baka að athöfn lokinni eða um klukkan 18.                
Lesa meira

Sýningar á verkum nemenda

Á morgun miðvikudag verða sýningar í skólahúsunum við Norðurgötu Siglufirði kl. 16 – 18 og við Tjarnarstíg Ólafsfirði kl. 18 – 20.  Ferðir skólabíls verða sem hér segir:   Frá Ólafsfirði  kl. 15.45 Frá Siglufirði  kl. 17.45 Frá Ólafsfirði kl. 19.45 
Lesa meira

Heimasíður 1.- 4. bekkja

Fréttir af skólastarfinu við Norðurgötu hafa verið nokkuð reglulega settar inn á heimasíður bekkjanna í vetur. Hér eru hlekkir inn á hvora síðu. 1.-2. bekkur:  /s05 3.-4. bekkur: /s04
Lesa meira

Fatasund

6. og 7. bekkur fóru í fatasund í sundtíma í morgun. Sólin skein glatt og myndaðist frábær stemming hjá nemendum sem voru duglegir sprikla í sundlauginni í fullum klæðnaði. Myndirnar tala sínu máli og er hægt að sjá þær hér.
Lesa meira

Vinaliðar

Fyrr í vikunni fengur vinaliðar skólans ferð að launum fyrir vel unnin störf. Þau eyddu deginum á Akureyri þar sem ýmislegt skemmtilegt var brallað en myndir af deginum er hægt að sjá hér.  Það hefur verið í höndum Maríu B. Leifsdóttur að halda utanum verkefnið og vinaliðana og er hún hæstánægð með vinnuframlag vinaliðana og þátttöku nemenda.
Lesa meira

Aðalfundur foreldrafélagsins í kvöld.

Minnum á aðalfund foreldrafélagsins í skólahúsnæðinu við Norðurgötu í kvöld kl 20:00
Lesa meira

Bestu þakkir

Bestu þakkir til allra þeirra sem tóku á móti nemendum 10.bekkjar í starfskynningu. Án velvilja og hjálpsemi samfélagsins væri þetta ekki hægt. Takk fyrir okkur Grunnskóli Fjallabyggðar. Sjá fleiri myndir í lesa meira
Lesa meira

Aðalfundur Foreldrafélagsins

Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar boðar til aðalfundar ÞRIÐJUDAGINN 20. maí KL 20:00 Fundurinn verður haldinn í skólahúsinu Norðurgötu á Siglufirði.  Fundarefni: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar 4. Kosning stjórnarmanna 5. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga 6. Kosning fulltrúa í skólaráð, skv. starfsreglum félagsins 7. Önnur mál  Fyrir hönd stjórnar Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar, Gunnar Smári Helgason formaður
Lesa meira