Fréttir

2. önn að ljúka

Þá er 2. önn að ljúka með foreldraviðtölum á öllum starfsstöðvum í dag, á morgun er  starfsdagur og því frí hjá nemendum. N.k mánudag og þriðjudag verður vetrafrí. Miðvikudaginn 5. mars hefst ný önn og mæta nemendur aftur í skólann eftir vetrarfrí. Þann dag er öskudagur og því verður skóladagurinn styttri en venjulega. Kennslu á miðstigi lýkur kl 12:00 - rúta frá Tjarnarstíg Kennslu á unglingastigi lýkur kl 12:30 - rúta frá Torginu Ath breyttar rútuferðir fram á miðvikudag.   Kl.  Siglufjörður   Kl. Ólafsfjörður   Fimmtudagur 27. febrúar 08:00 Neðra skólahús 08:40  MTR   12:30 Torg 13:00 MTR   15:00  Torg  15:45   MTR Föstudagur 28. febrúar   08:00 Neðra skólahús   08:40 MTR   12:30 Torg  13:00   MTR    15:00 Torg   15:45  MTR  Mánudagur 3. mars  08:00 Neðra skólahús  08:40   MTR    12:30 Torg  13:00   MTR    15:00  Torg  15:45 MTR   Þriðjudagur 4. mars  08:00  Neðra skólahús  08:40  MTR    12:30  Torg  13:00  MTR    15:00  Torg  15:45  MTR
Lesa meira

1. bekkur fær ávaxtasendingu

Eins og fram hefur komið hér á síðunni var 1. bekkur við Tjarnarstíg dregin út í Lífshlaupi ÍSÍ og vann ávaxtasendingu frá ávaxtasérfræðingunum hjá Ávaxtabílnum.  Í gær fengu nemendur svo ávextina og deildu þeim með bekkjarfélögum sínum í 2.-4. bekk. Lífshaupið er enn í gangi og eru bæði nemendur og starfsmenn extra duglegir að hreyfa sig þessa dagana. Sjá fleiri myndir frá 1. -4. bekk hér.
Lesa meira

Þorrablót

        S.l föstudag var haldið þorrablót við Tjarnarstíg þar sem nemendur fengu að smakka hefðbundinn þorramat og voru einstaka nemendur sem létu sig hafa það að smakka hákarl og fleira í fyrsta sinn. Misjafnt var  hversu vel þorramaturinn rann niður en þó voru nokkrir sem borðuðu hann með bestu lyst. Tónmenntakennarar stýrðu síðan fjöldasöng þar sem sungin voru nokkur vel valin þorralög. Hæg er að sjá myndir af þorrablótinu hér.
Lesa meira

Nemendur og starfsfólk skólans taka þátt í lífshlaupinu.

Lífshlaup ÍSÍ er í fullum gangi.  Nemendur í Grunnskóla Fjallabyggðar taka þátt í Lífshlaupinu og eru að standa sig vel. Sem stendur eru þeir í fjórða sæti yfir skóla með 150 - 399 nemendur Á hverjum degi eru dregnir út vinningshafar á meðal þátttakenda og í gær var það 1. bekkur við Tjarnarstíg hjá Grunnskóla Fjallabyggðar sem vann sér inn ferska og glæsilega ávaxtasendingu frá ávaxtasérfræðingunum hjá Ávaxtabílnum í skráningarleik Rásar2 og ÍSÍ. Dregið var út hjá Virkir morgnar á RÁS 2 nú í morgun. Til hamingju 1. bekkur við Tjarnarstíg.
Lesa meira

112 dagur

Í morgun kom björgunarsveitin, slökkviliðið, sjúkrabíllinn og lögregla í heimsókn með fræðslu og sýndu nemendum helstu tæki sín og tól. Nemendur sýndu þeim mikinn áhuga og skemmtu sér við að prufa ýmislegt merkilegt sem í boði var. Kærar þakkir fyrir heimsóknina. Myndir frá deginum má sjá hér.
Lesa meira

Sjálfstyrkingarnámskeið

  Dagana 4. og  5. febrúar var boðið upp á sjálfstyrkingarnámskeið fyrir stúlkur í 5.-10. bekk hér í skólanum. Kristín Tómasdóttir rithöfundur  hélt námskeiðið en Kristín er með BA-próf í kynjafræði og sálfræði og hefur unnið mikið með unglingsstúlkur og sjálfsmynd. Kristín byggði námskeið sitt  mikið út frá fræðslubókunum sem hún hefur gefið út fyrir stelpur. Námskeiðið tókst mjög vel og höfðu stúlkurnar mikla ánægju af heimsókn Kristínar sem náði vel til þeirra í  spjalli um sjálfsmyndina og hvernig mætti hafa jákvæð áhrif á hana.Mæting á námskeiðið var mjög góð. Námskeiðið var stúlkunum að kostnaðarlausu en það voru fyrirtæki og félagasamtök í Fjallabyggð sem styrktu verkefnið og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Hægt er að sjá myndir frá námskeiðinu hér.
Lesa meira

Vinaliðaverkefni

Vinaliðaverkefni skólans hófst s.l. þriðjudag við skólahúsnæðið í Tjarnarstíg og er það María B. Leifsdóttir sem heldur utanum verkefnið. Henni til aðstoðar var kosið 16 nemendur úr 5. -7. bekk sem sjá um ýmsa leiki úti í löngu frímínútum þrisvar sinnum í viku. 23. janúar s.l var farið með vinaliða á leikjanámskeið á Þelamörk þar sem þeir voru undirbúnir fyrir verkefnið.  Hér vinstra megin á síðunni  má sjá
Lesa meira

Söng- og hæfileikakeppni Grunnskóla Fjallabyggðar

Fimmtudaginn 6. febrúar kl. 17:30 verður söng- og hæfileikakeppni grunnskólans haldin í Tjarnarborg. Keppendur koma úr 1.-6. bekk og taka þátt ýmist einir eða í hóp. Rúta fer frá Torginu kl. 17:00 og heim aftur að keppni lokinni.   Enginn aðgangseyrir Allir velkomnir!
Lesa meira

Grunnskóli Fjallabyggðar auglýsir foreldrafund

Foreldrafundur verður haldinn miðvikudaginn 5. febrúar kl. 20 í Tjarnarborg.  Kristín Tómasdóttir rithöfundur flytur erindi undir yfirskriftinni: ,,Hvernig getum við haft jákvæð áhrif á sjálfsmynd unglinga?" Skólastjóri
Lesa meira