31.01.2013
Fimmtudaginn 31. janúar kl. 17 verður hæfileikakeppni grunnskólans haldin
í Tjarnarborg.
Keppendur koma af öllum aldursstigum og taka þátt ýmist einir eða í
hóp.
Rúta fer frá Torginu kl. 16:30 og til baka að keppni lokinni.
Enginn aðgangseyrir
Allir velkomnir!
Lesa meira
28.01.2013
Fræðslufundur fyrir foreldra var haldinn í síðustu viku. Fundurinn gekk vel og voru um 30 foreldrar mættir til að hlusta á
þrjá mismunandi fyrirlestra. Ríkey skólastjóri kynnti Skólapúslinn fyrir foreldrum og fjallaði um helstu niðurstöður úr
nemendakönnun í haust. Valdís Guðbrandsdóttir iðjuþjálfi og verkefnisstjóri Uppbyggingarstefnunnar í Dalvíkurskóla
fjallaði um Uppbyggingarstefnuna, hugmyndafræði og foreldraþátt og uppbyggingarteymi Grunnskóla Fjallabyggðar sagði frá því sem unnið
hefur verið í skólanum. Að lokum fjallaði Guðný Jóna Þorsteinsdóttir náms- og starfsráðgjafi um skólaforeldra,
hvernig foreldrar geta stutt við nám barna sinna og átt árangursríkt samstarf við skólann.
Lesa meira
27.01.2013
Þessa dagana er lestrarátak hjá okkur. Daglega lesa nemendur og kennari þeirra í 15 mínútur.
Við Tjarnarstíg hefur verið gerð þessi skemmtilega bókahilla sem má sjá hér neðar. Þegar nemendur ljúka hverri bók
útbúa þeir bókakjöl af bókinni þar sem þeir skrá nafn sitt, nafn bókarinnar og höfund.
Bókakjölurinn er síðan límdur í bókahilluna. Nemendur er virkilega áhugasamir og stefna á að fylla margar bókahillur í
átakinu.
Lesa meira
23.01.2013
Fræðslufundur fyrir foreldra
nemenda í Grunnskóla Fjallabyggðar verður haldinn miðvikudaginn 23. janúar kl. 17.30 í skólahúsinu við
Norðurgötu.
Dagskrá fundarins.
1. Kynning á sjálfsmatstækinu
Skólapúlsinn
2. Kynning á hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar og
vinnunni í skólanum.
3. Erindi námsráðgjafa um hvernig foreldrar geta
stutt börn sín í náminu, aukið metnað og trú á eigin getu.
Skólastjóri
Lesa meira
20.01.2013
S.l föstudag tóku Ríkey Sigurbjörnsdóttir og Róbert Haraldsson ásamt hópi nemenda í
fluguhnýtingarvali við gjöf frá Stangveiðifélagi Siglufjarðar með styrk frá Sparisjóðnum og Vesturröst. Félagið gaf
skólanum 3 flugustangir að gjöf en fluguhnýtingar og stangveiði hefur verið valfag í skólanum síðustu ár sem er einstakt á
landsvísu. Við í skólanum færum fyrrgreindum aðilum okkar bestu þakkir fyrir rausnarlega gjöf og mun hún nýtast nemendum okkar vel.
Lesa meira
17.01.2013
Í dag hófst skákkennsla fyrir alla bekki í Tjarnarstígnum. Það er Sr. Sigurður Ægisson sem hefur tekið að sér að segja
börnunum til og voru nemendur mjög áhugasamir um skákina. Sr. Sigurður mun koma næstu 4 vikur og leiðbeina hverjum bekk í eina
kennslustund. Hér má sjá myndir úr skákkennslunni.
Lesa meira
14.01.2013
Þann 31. janúar fer hin árlega Söng- og hæfileikakeppni skólans fram í Tjarnarborg. Þar munu fjölmargir nemendur stíga á stokk og
sýna hina ýmsu hæfileika sem þeir búa yfir. Líklegt er þó að söngurinn verði fyrirferðamestur.
Undanfarin ár hefur verið húsfyllir í Tjarnarborg á þessum viðburði og gestir hafa skemmt sér sérlega vel.
Lesa meira
10.01.2013
Við skólann er starfandi skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald.
Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans í samræmi við stefnu sveitarfélags um
skólahald. Skólaráð fundar reglulega um málefni skólans og er hægt að nálgast fundagerðir skólaráðs hér eða undir linknum um skólann - skólaráð.
Lesa meira
07.01.2013
Nú er tilbúin ný aksturstafla sem gildir fram á sumar, hægt er að nálgast hana linknum
tímaáætlun skólabíls vinstra megin á síðunni.
Lesa meira