Fréttir

Verkgreinakennsla

Dálítil töf varð á því að hægt væri að kenna matreiðslu, tækni- og textílmennt í nýju og endurbættu skólahúsi við Tjarnarstíg er skólastarfið hófst í haust. Nú eru stofurnar að mestu leiti tilbúnar og kennsla hófst í þeim nú í vikunni. Enn vantar þó ýmsan búnað í þær og vonir standa til að úr því verði bætt fljótlega. Það voru glaðir nemendur og kennarar sem nutu sín í nýju stofunum og hægt er að sjá myndir úr matreiðslu og texílmenntartíma hjá 5. bekk hér. Einnig eru myndir í sömu möppu af nemendum á yngra stigi á Hreystidaginn sl. mánudag. sksiglo.is náði myndum af unglingastiginu og hægt er að sjá þær hér. 
Lesa meira

Frábær frammistaða í Norræna skólahlaupinu

Nemendur skólans tóku þátt í Norræna skólahlaupinu sl. þriðjudag og stóðu sig einstaklega vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Það var úrhellisrigning og jafnvel slydda á köflum en nemendur létu það ekki stoppa sig og hafa sjaldan verið áhugasamari um að hlaupa. Allir tóku þátt og fjölmargir lögðu 10 km að baki. Nemendur eldri deildarinnar, sem eru rétt rúmlega 80, hlupu t.d. hvorki meira né minna en 590 km. samtals.
Lesa meira

Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar

Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar verður haldinn  þriðjudaginn  9. október í skólahúsinu Ólafsfirði og hefst kl. 20. Eftirtaldir foreldrar gefa áfram kost á sér í stjórn:  Gunnar Smári Helgason, Auður Eggertsdóttir,  Hrönn Gylfadóttir og Rut Viðarsdóttir. Eftirtaldir nýliðar gefa kost á sér í stjórn Foreldrafélagsins;  Katrín Freysdóttir og  Sigurður Ægisson.
Lesa meira

Norræna skólahlaupið á morgun

Á morgun er fyrirhugaður hreystidagur og er helsta  viðfangsefnið að taka þátt í Norræna skólahlaupinu. Dagskrá er á þá leið að fyrstu tvo tímana er venjuleg kennsla, síðan halda nemendur yngri deildarinnar á Siglufirði með rútu til Ólafsfjarðar þar sem nemendur 1. – 7. bekkjar munu eiga daginn saman við hlaup, sund og leiki í salnum.   Nemendur eldri deildar byrja að hlaupa/ganga um kl. 10 og er lágmarksvegalengd hvers nemenda 5 km en þeir viljugustu geta farið allt að 10 km. Keppt verður milli bekkja hverjir leggja lengsta vegalengd að baki. Eftir hádegi verður sundkeppni milli bekkja  og skóladegi lýkur kl. 13.30.
Lesa meira

Haustþing KSNV og SNV á föstudaginn

Næstkomandi föstudag, 28. sept., fer haustþing Kennarasambands Norðurlands vestra og skólastjórafélags sama svæðis fram á Sauðárkróki. Kennarar og stjórnendur í Grunnskóla Fjallabyggðar ákváðu á sínum tíma að tengjast frekar í vestur en austur og sækja því haustþing þessa félagsskapar.
Lesa meira

Kosning í ungmennaráð

Nú er lokið kosningu fulltrúa skólans í ungmennaráð Fjallabyggðar, í kjöri voru nemendur úr 9. og 10. bekk og buðu nokkrir sig fram.  Ungmennaráðið er ráðgefandi um málefni ungs fólk í Fjallabyggð og fundar einu sinni í mánuði.
Lesa meira

Samræmd próf standa yfir

Í þessari viku standa samræmd próf yfir. Nemendur 10. bekkjar tóku próf í íslensku í gær, taka próf í ensku í dag og stærðfræði á morgun.
Lesa meira

Fréttir úr skólabúðunum

Nú fer að líða á seinni hluta ferðarinna hjá 7. bekk í skólabúðunum að Reykjum.  Nemendur skólans hafa verið til fyrirmyndar og njóta þess að vera hérna. Kennslustundirnar hjá þeim eru fjölbreyttar og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að loknum kennslustundum dunda þau sér í spilasalnum, sundi, skoða hitt kynið og ýmislegt fleira. Hér koma reglulega inn myndir úr ferðinni. Bestu kveðjur frá Reykjum :)
Lesa meira

Málþing samtakanna Heimili og skóli

Heimili og skóli fagna 20 ára afmæli samtakanna 17. september nk. og af því tilefni er blásið til málþings í Gerðubergi þar sem samtökin voru stofnuð. Rætt verður um samráð við breytingar á skólastarfi. Hvað er samráð? Hver er réttur foreldra og barna? Þessum spurningum og fleiri verður leitast við að svara á málþinginu en yfirskriftin er Samráð í sátt.
Lesa meira

7. bekkur í skólabúðum á Reykjum

Þessa vikuna eru nemendur 7. bekkjar í skólabúðunum á Reykjum í Hrútafirði. Vegna óveðurs komust þau ekki af stað fyrr en á þriðjudagsmorgni í stað mánudags og því er vist þeirra einum degi styttri en ella.
Lesa meira