30.11.2012
Í kjölfar hinnar góðu gjafar, sem segir frá hér að neðan, og skólinn fékk til að efla skákkennslu í skólanum er
sú kennsla hafin í yngri deildinni við Norðurgötu. Sr. Sigurður Ægisson hefur tekið að sér að segja börnunum til og voru þau
mjög áhugasöm í fyrstu kennslustund.
Sigurður útskýrir mannganginn fyrir börnunum
Hér má sjá áhugasamar dömur í 1. bekk
Lesa meira
30.11.2012
Nú í vikunni var haldin Skólahreystikeppni í Grunnskóla Fjallabyggðar og voru
það nemendur á unglinga- og miðstigi sem þreyttu þá keppni. Sigurvegarar í 9. og/eða 10.
fá síðan að keppa í Skólahreystikeppninni á Norðurlandi. Skólahreysti er liðakeppni milli grunnskóla landsins. Hvert lið samanstendur af tveimur strákum og tveimur
stelpum sem öll þurfa að vera nemendur í 9. og/eða 10. bekk síns skóla. Keppt er í eftirfarandi keppnisgreinum:
Upphífingum (strákar)
Armbeygjum (stelpur)
Dýfum (strákar)
Hreystigreip (stelpur)
Hraðaþraut (strákar og stelpur)
Úrslit úr keppninni verða kynnt hér síðar.
Myndir frá keppninni.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Skólahreysti.
Lesa meira
22.11.2012
Grunnskóla Fjallabyggðar barst peningagjöf í júlí s.l. frá nemendum fæddum 1962 og voru í
skólanum á Siglufirði á árunum 1969-1978. Gjöfin var ætluð til kaupa á kennslugögnum til að efla skákkennslu í
skólanum. Nú hefur upphæðinni verið varið til kaupa á skáksettum og skákklukkum. Á næstunni hefst skákkennsla í
bekkjunum við Norðurgötu Siglufirði og á nýju ári við Tjarnarstíg Ólafsfirði, nú þegar er skák kennd sem valgrein
í unglingadeildinni við Hlíðarveg. Meðfylgjandi mynd er frá því í sumar þegar fulltrúar árgangsins þær Agnes
Þór Björnsdóttir og Dagmar Jensdóttir afhentu Jónínu Magnúsdóttur skólastjóra gjafabréf.
Færum við kærar þakkir fyrir.
Sjá fleiri myndir hér fyrir neðan
Lesa meira
22.11.2012
Skólaakstur fellur niður í Fjallabyggð fimmtudaginn 22. nóvember 2012
skólastjóri
Lesa meira
15.11.2012
Nú er að ljúka 1. önn þessa skólaárs og nemendur mæta í viðtalstíma hjá umsjónarkennara sínum
í dag. Á morgun er starfsdagur kennara og frí hjá nemendum.
N.k mánudag og þriðjudag verður vetrarfrí og kennsla hefst aftur á miðvikudaginn samkvæmt stundatöflu.
Lesa meira
09.11.2012
Skólaakstur fellur niður í Fjallabyggð í dag föstudaginn 9.
nóvember
skólastjóri
Lesa meira
08.11.2012
Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti hefur ákveðið að helga 8. nóvember ár
hvert baráttunni gegn einelti. Slíkur baráttudagur var fyrst haldinn árið 2011 og markmiðið með deginum er og var að vekja
sérstaka athygli á málefninu. Undirritun fulltrúa félaga, samtaka og opinberra stofnana á þjóðarsáttmála gegn einelti
var þar einn liður. Sáttmálinn er einnig grunnur að frekari vinnu,
Á vefsíðunni Í þínum
sporum er hægt að skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti. Með því að undirrita skuldbindum við okkur
til að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar.
Lesa meira
06.11.2012
Samkvæmt venju verður skólablaðið Snarl gefið út fyrir jólin. Það eru nemendur 10. bekkjar sem sjá um vinnslu blaðsins og í dag
hófst formlega vinna við það. Í blaðinu verður forvitnilegt efni af ýmsu tagi sem nemendur skrifa að mestu.
Lesa meira
02.11.2012
Skólaakstur fellur niður í dag föstudaginn 2.nóvember.
skólastjóri
Lesa meira