Samræmd próf hafin í 7. bekk

Í morgun hófst fyrsta samræmda próf vetrarins og að þessu sinni eru þau tekin rafrænt bæði í 4.og 7. bekk. Það voru 7. bekkingar sem byrjuðu á íslenskuprófi í dag og á morgun taka þau stærðfræðipróf. Samræmdu prófin í 4. bekk verða svo lögð fyrir í næstu viku.

Fyrir prófið bauð skólinn nemendum upp á hafragraut og ávexti sem mæltist vel fyrir hjá nemendum.