Grunnskóli Fjallabyggðar auglýsir

Lausar eru stöður kennara við Grunnskóla Fjallabyggðar

 100% staða umsjónarkennara á yngsta stigi.

100% staða á unglingastigi, aðalkennslugrein stærðfræði. Afleysing til eins árs.

100% staða umsjónarkennara á miðstigi.

50% staða íþróttakennara

50% staða náms- og starfsráðgjafa.

 Grunnskóli Fjallabyggðar var stofnaður haustið 2010.

Starfstöðvar eru tvær, í Ólafsfirði og á Siglufirði.

Skólinn starfar samkvæmt Uppeldi til ábyrgðar og Olweusarstefnu gegn einelti. Þá hefur ART verið innleitt í bekkjarstarf. Nánari upplýsingar um skólann má finna á http://grunnskoli.fjallabyggd.is/

 Umsóknarfrestur er til 27. maí 2015

 Nánari upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir skólastjóri í síma  464-9150 og  844-5819 eða í gegnum netfangið rikey@fjallaskolar.is