Fundur fyrir foreldra/forráðamenn í Fjallabyggð þann 22. febrúar kl. 19.30 í Tjarnarborg, Ólafsfirði.

                      HVENÆR ER BESTI TÍMI DAGSINS TIL ÞESS AÐ ALA UPP BARN?

 Fundur fyrir foreldra/forráðamenn í Fjallabyggð þann 22. febrúar kl. 19.30 í Tjarnarborg, Ólafsfirði.

 Forvarnarfræðsla Magga Stef verður með fræðslustund í skólanum ykkar þar sem við finnum svar við þessari spurningu, ásamt því að skoða:

  • Uppeldistengd málefni
  • Gildi, hefðir og venjur
  • Hvernig við styrkjum tilfinningagreind barna
  • Hvernig við styrkjum sjálfstraust barna
  • Kannabisplöntuna (hass/gras/weed/vax/olía) og skaðleg áhrif af neyslu.

 Einnig verða sýnd helstu einkenni fíkniefnaneyslu og hvernig er gott að bregðast við ef grunur um neyslu kemur upp.

 Aðeins um fyrirlesarann Magnús Stefánsson.

Magnús Stefánsson hefur starfað sem fyrirlesari hjá Maritafræðslunni

síðan árið 2001.

Hann hefur getið sér gott orð í því að ná til ungmenna við að útskýra

mögulega skaðsemi vímugjafaeyslu.

Magnús er tónlistarmaður og hefur spilað með hljómsveitunum s.s. UTANGARÐSMÖNNUM, EGO og SÁLINI HANS JÓNS MÍNS.

 Uppfræddir og meðvitaðir foreldrar eru besta forvörn sem völ er á og rannsóknir sýna að unglingar taka mark á því sem foreldrar þeirra segja.

Þess vegna er mikilvægt að foreldrar séu virkir í umræðunni og taki fullan þátt í að fræða unglingana sína.

 

Það þarf heilt þorp til þess að ala upp eitt barn

Allir foreldra/forráðamenn hjartanlega velkomnir.

Kær kveðja Magnús Stefánsson

Póstfang: magnusstef@simnet.is Vefsíða: magnusstef.is fb: Forvarnarfræðsla Magga Stef