Ný heimasíða Grunnskóla Fjallabyggðar

 

Nú hefur verið opnað fyrir nýja glæsilega heimasíðu Grunnskólans. Markmið okkar með nýju síðunni er að auðvelda aðgengi fólks að upplýsingum um skólann  á einfaldan og þægilegan hátt. Nýja síðan okkar mun verða í sífeldri þróun og athugasemdir við síðuna er hægt að senda á netfangið siggai@fjallaskolar.is
Vefurinn er uppsettur í vefumsjónarkerfinu MOYA frá STEFNU hugbúnaðarhús. Vefurinn er hannaður fyrir snjalltæki (Responsive web design) og er útlit stílað til fyrir þrjár gerðir af tækjum; snjallsíma, spjaldtölvu og venjulegar tölvur.  Notendur síðunar geta nú notað „feed“ til að senda fréttir á Facebook og Twitter eða sett „like“ á fréttir.