Dagur læsis

Í dag er alþjóðlegur dagur læsis og hvöttu kennarar í Grunnskóla Fjallabyggðar nemendur til að koma með bók að heiman í skólann.  Á myndinni eru 1. bekkingar að lesa saman bók um norræna goðafræði sem einn þeirra kom með. Börnin voru líka hvött til að vera dugleg að fara á bókasafnið og lesa þar. Hér er hlekkur inn á KrakkaRÚV frá því í gær: http://www.ruv.is/sarpurinn/ras-1/utvarp-krakkaruv/20170907   Skemmtilegur þáttur. Hlustið á krakkana segja frá uppáhaldsbókunum  sínum!