Fréttir

Grunnskólakennara vantar

50% staða grunnskólakennara við Grunnskóla Fjallabyggðar er laus til umsóknar. Kennslugreinar eru íþróttir, sund og dans. Um er að ræða afleysingu vegna forfalla út þetta skólaárið.
Lesa meira

Þórarinn heimsótti nemendur í 5.-7. bekk

Þriðjudaginn 14. október fengu nemendur í 5.-7. bekk góða heimsókn þegar Þórarinn Hannesson kom og las fyrir nemendur frumsamin ljóð og ræddi við nemendur um ljóðagerð og mismunandi ljóðaform.
Lesa meira

Hreystidagur í síðustu viku

Nú höfum við fengið fleiri skemmtilegar myndir frá Hreystideginum
Lesa meira

Hreystidagur - Norræna skólahlaupið

Í dag var hreystidagur hjá okkur og var hann tileinkaður Norræna skólahlaupinu.
Lesa meira

Alþjóða skólamjólkurdagurinn í dag

Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er í dag og er hann haldinn í fimmtánta sinn víða um heim fyrir tilstuðlan Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Lesa meira

Leiksýningin Halla frá Kómedíuleikhúsinu

Leiksýningin Halla er fyrsti viðburður ljóðahátíðarinnar Haustglæður, sem áður hét Glóð, en að hátíðinni standa Umf Glói og Ljóðasetur Íslands.
Lesa meira

Göngum í skólann.

Í tilefni af átakinu Gengið í skólann hrindum við af stað smá innanskólakeppni, en hún heitir Gengið í skólann/skólabílinn. Þar eru nemendur hvattir til að nota virkan ferðamáta, þ.e. ganga, hjóla o.s.frv. (allt annað en að fá far með bíl). Keppnin hefst næsta mánudag og stendur í tvær vikur, en bekkirnir keppa um gullskóinn á elsta stigi, en í 1.-7.bekk er keppt um gull-, silfur- og bronsskóinn. Vonum við að foreldrar hjálpi til við að hvetja börnin til dáða og að keppnin verði til þess að nemendur temji sér virkan ferðamáta. Með bestu kveðjum,hreystiteymi grunnskólans  
Lesa meira

Safnaferð 5. bekkjar í Skagafjörð

Miðvikudaginn 10. sept fór 5. bekkur í safnaferð í Skagafjörðinn. Byrjað var á að fara í Glaumbæ þar sem við skoðuðum gamla bæinn og alla gömlu munina. Svo var ferðinni heitið á Hóla í Hjaltadal þar sem tekið var mjög vel á móti okkur, við skoðuðum kirkjuna og kirkjuturninn og svo fengum við líka að skoða hesthúsin. Þetta var frábær og fræðandi ferð. Hægt er að sjá myndir úr ferðinni hér.
Lesa meira

Dagur rauða nefsins

Hér erum við með fínu nefin sem við föndruðum. Við fengum líka fræðslu um hvað við getum gert til að hjálpa börnum úti í heimi.
Lesa meira

Lestur er bestur!

Heimsókn 1. og 2. bekkjar á bókasafnið.
Lesa meira