28.08.2014
Grunnskóli Fjallabyggðar var settur s.l. mánudag og var um leið tekin í notkun glæsileg nýbygging við skólahúsið í
Norðurgötu. Unglingastigið mun því verða við Norðurgötuna í vetur ásamt yngstu nemendunum frá Siglufirði. Í
nýbyggingunni er mötuneyti og verkgreinastofur og munu nemendur því ekki þurfa að fara úr skólanum í verkgreinar né mat.
Skólastarfið er nú komið vel af stað á báðum stöðum og eru spennandi vetur framundan hjá okkur hér í
skólanum.
Sjá fleiri myndir úr Norðurgötunni hér.
Lesa meira
21.08.2014
Grunnskóli Fjallabyggðar auglýsir skólaliðastarf
Laust er til umsóknar 50% staða skólaliða. Skólaliðastarfið er blandað starf sem felur í sér ræstingu og gæslu
í skólahúsinu í Ólafsfirði. Vinnutími er kl. 11.00 – 15.00. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum. Viðkomandi þarf að
geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 29.ágúst nk.
Upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir skólastjóri í síma 844-5819844-5819 eða í
gegnum netfangið rikey@fjallaskolar.is. Umsóknir skulu sendar á netfangið rikey@fjallaskolar.is
Call
Send SMS
Add to Skype
You'll need Skype CreditFree via Skype
Lesa meira
19.08.2014
Skólasetning Grunnskóla Fjallabyggðar skólaárið 2014-2015 verður mánudaginn 25. ágúst nk. sem hér segir.
Kl. 11:00 1.-4.bekkur og 8.-10.bekkur við Norðurgötu Siglufirði
Skólarúta fer frá skólahúsinu við Tjarnarstíg Ólafsfirði kl. 10:40 og til baka frá Norðurgötu kl. 11:45
Kl: 13:00 1.-4.bekkur og 5.-7.bekkur við Tjarnarstíg Ólafsfirði.
Skólarúta fer frá skólahúsinu við Norðurgötu Siglufirði kl. 12:40 og til baka frá Tjarnarstíg kl. 13:30
Nemendur í 1.bekk koma í boðuð viðtöl til umsjónarkennara þennan dag.
Kennsla hefst þriðjudaginn 26.ágúst samkvæmt stundatöflu.
Skólastjóri.
Lesa meira
13.08.2014
Nú fer senn að líða að nýju skólaári og undirbúningur fyrir komu nemenda hafinn.
Innkaupalista fyrir næsta skólaár er hægt er að finna hér.
Skóladagatal næsta skólaárs er hægt að finna hér.
Skólaakstur er hægt að finna hér.
Lesa meira
11.08.2014
Starfsmaður óskast í lengda viðveru skólabarna á aldrinum 6-8 ára við Norðurgötu Siglufirði
næsta skólaár til að sinna stuðningi við barn með sérþarfir.
Lengd viðvera er gæsla að loknum skóladegi. Vinnutími er frá kl. 13.00 til 16.00. Ráðningin nær
aðeins til starfstíma skóla. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum.
Umsóknarfrestur er til 18.ágúst
nk.
Upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir skólastjóri
í síma 844-5819 eða í gegnum netfangið rikey@fjallaskolar.is.
Umsóknir skulu sendar á netfangið rikey@fjallaskolar.is
Lesa meira