Fréttir

Umhverfisdagur

Nemendur við Norðurgötu gerðu tilraunir og skúlptúra úr snjó
Lesa meira

Einar töframaður heimsækir nemendur

Í morgun heimsótti Einar Mikael nemendur Grunnskólans og sýndi þeim nokkur töfrabrögð. Einar mun svo vera með sýningu í Allanum á Siglufirði og byrjar hún kl 19:30. Miðaverð er 1500 kr. Nánari upplýsingar er hægt að finna á tofrabrogd.is Myndir frá Hlíðarvegi og Tjarnarstíg eru komnar inn í myndaalbúmið.   Nemendur við Norðurgötu   Nemendur við Tjarnarstíg Nemendur við Hlíðarveg      
Lesa meira

Unglingastigið fer til Reykjarvíkur á Skólahreysti

Í hádeginu mun unglingastigið leggja af stað til Reykjavíkur til að fylgjast með sínu liði keppa í lokakeppni Skólahreystis í kvöld. Úrslitakeppni Skólahreysti 2013 fer fram í kvöld fimmtudag 2.maí í Laugardalshöll og hefst kl. 20:00. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV kl. 20:00-21:45 Ljóst er að keppnin verður gríðarlega spennandi þar sem mikið jafnræði er með þeim 12 skólum sem keppa að þessu sinni. Allt stefnir í áhorfendamet á Skólahreysti og einstaka stemningu sem öllum stendur til boða að upplifa. Gera má ráð fyrir hátt í fimmþúsund áhorfendum í Laugardalshöllinni og á annað hundrað þúsund áhorfendum heima í stofu. Við hvetjum alla til að fylgjast með og óskum keppendunum góðs gengis. Áfram Grunnskóli Fjallabyggðar!
Lesa meira

Glæsileg Vorhátíð

Á dögunum fór Vorhátíð 1.-7. bekkjar fram í Tjarnarborg. Þar var boðið upp á viðamikla og glæsilega dagskrá sem gestir höfðu gaman af. Hátíðin byrjaði með samsöng allra nemenda í 1.-7. bekk. Var gaman að sjá þennan föngulega hóp saman kominn á sviði Tjarnarborgar og hljómaði söngurinn hátt og snjallt. 
Lesa meira

Heppnir krakkar

Þessir krakkar voru heppnir í dag, þau eignuðust mynd eftir listamanninn Robert Dorlac. Hann bauð  hópnum við Norðurgötu á sýningu sína í Herhúsinu. Þetta er vatnslitamynd af jaðrakan, en það er einmitt von á honum þessa dagana, bæði tjaldurinn og stelkurinn eru mættir.    
Lesa meira

Erla Marý nemandi í 9. bekk lenti í 2.-3. sæti í Raunveruleiknum

Á hverju ári taka nemendur í 9. og 10.bekk þátt í Raunveruleiknum, en það er námsleikur sem Landsbankinn býður nemendum að taka þátt í. Nemendur fá úthlutaða „persónu“ og eiga að lifa hennar lífi í leiknum með tilheyrandi kostnaði og brasi. Nemendur fá líka verkefni til að vinna sem snúa að daglegu lífi og fjármálum. Í leiðinni er þetta keppni og fyrstu þrjú sætin verðlaunuð. Erla Marý í 9.bekk lenti að þessu sinni í 2.-3.sæti og kom fulltrúi Landsbankans sl.  þriðjudag og veitti henni verðlaun.
Lesa meira

Skólaakstri seinkar í dag mánudag

Skólaakstri seinkar í dag mánudag. Skólarúta fer frá Siglufirði kl. 8.30 og frá Ólafsfirði kl. 9.00.  Nemendur eru velkomnir að bíða í skólahúsunum við Tjarnarstíg og Hlíðarveg frá kl. 8.00. 
Lesa meira

Niðurstöður úr Olweusarkönnun nemenda

                                  Grunnskóli Fjallabyggðar hefur það að markmiði að starfa að einurð gegn einelti og vinnur því samkvæmt Olweusaráætlun. Einn hluti Olweusaráætlunarinnar er að leggja fyrir nemendur nafnlausa yfirlitskönnun um eineltisvandann o.fl. í formi sérhannaðs spurningalista. Þessi könnun er lögð fyrir árlega og og er ætlun hennar að finna einelti og koma í veg fyrir það.  Hér má sjá niðurstöður síðustu eineltiskönnunar.
Lesa meira

Fræðslufundur um geðheilbrigði

Fræðslufundur um geðheilbrigði barna og unglinga, nám og stýrifærni Foreldrar, afar, ömmur og aðrir aðstandendur barna og unglinga í Fjallabyggð. Miðvikudaginn 3. apríl nk. stendur félagsþjónusta Fjallabyggðar fyrir opnum fræðslufundi um geðheilbrigði barna og unglinga, nám og stýrifærni  í Ráðhúsinu  á Siglufirði 2. hæð  kl. 17:00. Þar munu þeir Haukur Örvar Pálmason  og Bóas Valdórsson sálfræðingar á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans fjalla um geðheilbrigði barna og unglinga, áhrif ofvirkni og  athyglisbrests  á nám og starf og hvernig mæta má  þörfum barna og unglinga  í skólastarfi og heima fyrir. Fræðslufundur verður haldin fyrir starfsfólk Grunnskóla Fjallabyggðar fyrr um daginn. Allir velkomnir Félagsþjónusta Fjallabyggðar
Lesa meira

Glæsilegur sigur í Skólahreysti

Í dag fór fram undankeppni í Skólahreysti fyrir Norðurland. Fór keppnin fram í íþróttahöllinni á Akureyri þar sem alls 19 skólar öttu kappi í tveimur riðlum. Annars vegar var átta skóla riðill með skólum Akureyrar og næsta nágrennis og hins vegar 11 skóla riðill með öðrum skólum á Norðurlandi allt frá Blönduósi að Þórshöfn. Við sendum öflugt lið til leiks og allir nemendur eldri deildar skólans fóru með til að hvetja liðið til dáða. Gabríel, Jakob Snær, Erla Marý og Eydís skipuðu lið okkar í ár
Lesa meira