Fréttir

Norræna skólahlaupið á morgun

Á morgun er fyrirhugaður hreystidagur og er helsta  viðfangsefnið að taka þátt í Norræna skólahlaupinu. Dagskrá er á þá leið að fyrstu tvo tímana er venjuleg kennsla, síðan halda nemendur yngri deildarinnar á Siglufirði með rútu til Ólafsfjarðar þar sem nemendur 1. – 7. bekkjar munu eiga daginn saman við hlaup, sund og leiki í salnum.   Nemendur eldri deildar byrja að hlaupa/ganga um kl. 10 og er lágmarksvegalengd hvers nemenda 5 km en þeir viljugustu geta farið allt að 10 km. Keppt verður milli bekkja hverjir leggja lengsta vegalengd að baki. Eftir hádegi verður sundkeppni milli bekkja  og skóladegi lýkur kl. 13.30.
Lesa meira

Haustþing KSNV og SNV á föstudaginn

Næstkomandi föstudag, 28. sept., fer haustþing Kennarasambands Norðurlands vestra og skólastjórafélags sama svæðis fram á Sauðárkróki. Kennarar og stjórnendur í Grunnskóla Fjallabyggðar ákváðu á sínum tíma að tengjast frekar í vestur en austur og sækja því haustþing þessa félagsskapar.
Lesa meira

Kosning í ungmennaráð

Nú er lokið kosningu fulltrúa skólans í ungmennaráð Fjallabyggðar, í kjöri voru nemendur úr 9. og 10. bekk og buðu nokkrir sig fram.  Ungmennaráðið er ráðgefandi um málefni ungs fólk í Fjallabyggð og fundar einu sinni í mánuði.
Lesa meira

Samræmd próf standa yfir

Í þessari viku standa samræmd próf yfir. Nemendur 10. bekkjar tóku próf í íslensku í gær, taka próf í ensku í dag og stærðfræði á morgun.
Lesa meira

Fréttir úr skólabúðunum

Nú fer að líða á seinni hluta ferðarinna hjá 7. bekk í skólabúðunum að Reykjum.  Nemendur skólans hafa verið til fyrirmyndar og njóta þess að vera hérna. Kennslustundirnar hjá þeim eru fjölbreyttar og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að loknum kennslustundum dunda þau sér í spilasalnum, sundi, skoða hitt kynið og ýmislegt fleira. Hér koma reglulega inn myndir úr ferðinni. Bestu kveðjur frá Reykjum :)
Lesa meira

Málþing samtakanna Heimili og skóli

Heimili og skóli fagna 20 ára afmæli samtakanna 17. september nk. og af því tilefni er blásið til málþings í Gerðubergi þar sem samtökin voru stofnuð. Rætt verður um samráð við breytingar á skólastarfi. Hvað er samráð? Hver er réttur foreldra og barna? Þessum spurningum og fleiri verður leitast við að svara á málþinginu en yfirskriftin er Samráð í sátt.
Lesa meira

7. bekkur í skólabúðum á Reykjum

Þessa vikuna eru nemendur 7. bekkjar í skólabúðunum á Reykjum í Hrútafirði. Vegna óveðurs komust þau ekki af stað fyrr en á þriðjudagsmorgni í stað mánudags og því er vist þeirra einum degi styttri en ella.
Lesa meira

220 nemendur við skólann í vetur

Nú á haustdögum eru 220 nemendur skráðir í skólann og er það töluverð fækkun frá síðasta skólaári því þá voru þeir 257. Líkt og síðustu ár má helst rekja fækkunina til þess að stórir árgangar eru að útskrifast en mun færri hefja nám í fyrsta bekk.  Í vor útskrifuðust 44 nemendur úr 10. bekk en 13 hefja nám í 1. bekk þetta haustið.
Lesa meira

Óskað framboða í Ungmennaráð Fjallabyggðar

Í gær heimsótti Gísli Rúnar Gylfason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Fjallabyggðar nemendur 9. og 10. bekkjar og kynnti fyrir þeim hlutverk Ungmennaráðs Fjallabyggðar og óskaði eftir framboðum í ráðið frá nemendum.
Lesa meira

Útivistardeginum frestað

Útivistardagurinn sem vera átti á morgun hefur verið frestað um óákveðin tíma.
Lesa meira