28.01.2011
Samkvæmt venju fjölmenntu nemendur yngri deildarinnar á Siglufirði á kirkjutröppurnar og sungu til sólarinnar á sólardegi Siglfirðinga,
þann 28. janúar.
Lesa meira
28.01.2011
Föstudaginn 28. janúar býður Rarik nemendum í 4. og 5. bekk að sjá sýninguna Bláa gullið á Akureyri.
Út frá sjónarhorni trúðsins er vatn skoðað á einlægan en trúðslegan hátt. Hvert ætli sé eðli vatns?
Hvað er svona merkilegt við það? Hvað er úthaf og hvað er tár, hvað er foss og regn? Hvaðan kemur vatn og hvert fer það? Trúðnum
er ekkert óviðkomandi og hann hikar ekki að leggja fram spurningar og vangaveltur um allt milli himins og jarðar.
Lesa meira
26.01.2011
Nemendur 2. bekkjar á Siglufirði settu á dögunum upp leikritið um Rauðhettu, léku þau það fyrst fyrir vini sína í 1. bekk og
síðan fyrir foreldra.
Lesa meira
24.01.2011
Ákveðið hefur verið að fresta hreystideginum um óákveðin tíma vegna snjóleysis.
Lesa meira
21.01.2011
Hreystidagur hjá yngra stigi verður miðvikudaginn 26. janúar. Þann dag verður kennt skv. stundatöflu fram að
löngufrímínútum og þá tekið nesti. Eftir það verður stefnan tekin upp í fjall og skíðað. Ólafsfirðingar fara
á skíðasvæði Ólafsfjarðar og Siglfirðingar fara inn í Skarðsdal. Ef nemendur vilja ekki vera á skíðum þá er
í boði að vera á þotu á Gullatúninu og á neðra svæðinu í Skarðsdal. Hádegismatur er kl. 12 og eftir það
verður gripið í spil.
Lesa meira
10.02.2011
Þann 10. febrúar verður söng- og hæfileikakeppni Grunnskóla Fjallabyggðar haldin í Tjarnarborg. Þar geta nemendur komið og sýnt hvað
í þeim býr, hvort sem er að syngja einir eða í hóp og eða sýna hæfileika sýna á annan hátt. Þeir sem ætla
að taka þátt eru beðnir um að skrá sig hjá umsjónarkennara ekki seinna en 28. janúar. Sérstakur lagalisti er fyrir nemendur á yngra
stigi, hann má sjá hjá umsjónarkennara. Hver nemandi getur aðeins tekið þátt í einu atriði.
Lesa meira
06.01.2011
Hér er mynd frá afhendingu viðurkenninga vegna merkis Grunnskóla Fjallabyggðar. Hákon og Andrea með viðurkenningar sínar.
Lesa meira
05.01.2011
Rétt í þessu lauk
afhendingu viðurkenninga fyrir merki Grunnskóla Fjallabyggðar. Eins og flestir muna var boðað til samkeppni s.l. vor á vegum fræðslu- og menningarnefndar
Fjallabyggðar. Tvær hugmyndir voru valdar og þeim steypt saman í eitt merki. Höfundar eru þau Hákon Leó Hilmarsson 8. bekk og Andrea Sif
Hilmarsdóttir en hún er fyrrum nemandi Grunnskóla Ólafsfjarðar.
Lesa meira
03.01.2011
Skóli hefst aftur að loknu jólafríi þriðjudaginn 4. janúar samkvæmt stundatöflu.
Lesa meira