15.11.2010
Á fimmtudaginn verður hreystidagur í skólanum. Yngri deildirnar munu þá eiga góðar stundir saman í Ólafsfirði, fara í
sund, Tarzan leik í íþróttahúsinu, reyna sig á gönguskíðum og renna sér á pokum, þotum og öðru slíkum
áhöldum á Gullatúni.
Lesa meira
10.11.2010
Það er
kominn vetur og tími endurskinsmerkjanna genginn í garð. Með notkun endurskinsmerkja er hinn almenni vegfarandi að auka öryggi sitt til muna, hann sést fimm sinnum fyrr þegar hann lendir í ljósgeisla bíls miðað við þann sem ekki er með endurskin. Ef
endurskin er ekki til staðar á fatnaðinum þarf að hafa laus endurskinsmerki á sér. Merkin þurfa að vera þannig staðsett að ljósgeisli frá bíl falli á þau hvort sem bíll kemur á móti eða aftan að
vegfaranda.
Lesa meira
05.11.2010
Síðustu misseri hefur staðið yfir myndbandakeppni 66°NORÐUR og er nú hafin netkostning þar sem valið er besta myndbandið. Nokkrir nemendur
Grunnskólans tóku þátt í keppninni og hvetjum við alla til að kíkja á myndböndin og taka þátt í kostningunni á
http://www.66north.is/
Lesa meira
28.10.2010
Vetrarfrí skólans verður 1. og 2. nóvember, kennsla hefst aftur miðvikudaginn 3. Nóvember
samkvæmt stundatöflu.
Lesa meira
27.10.2010
Í dag heimsótti rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson Grunnskóla Fjallabyggðar. Í morgun hitti hann nemendur yngri deildanna og las
fyrir þá úr bók sinni Ertu Guð, afi? en fyrir hana hlaut hann Íslensku barnabókaverðlaunin fyrr á þessu ári. Var lestrinum
afar vel tekið.
Lesa meira
26.10.2010
Þessa viku er grænlensk menningarvika barna- og
unglinga í Fjallabyggð. Grænlenskir listamenn eru hér í heimsókn, sýna grænlenska list og fræða börnin um Grænland, sögu
þess og menningu.
Lesa meira
22.10.2010
Það var líf og fjör á hreystidegi eldri deildar skólans sl. þriðjudag. Nemendur gengu suður að Hóli og tóku þar
þátt í Norræna skólahlaupinu. Stóðu þeir sig mjög vel og skiluðu hátt í þúsund kílómetrum
fyrir Íslands hönd. Hægt var að velja um að hlaupa 2,5 km, 5 km eða 10 km og hlupu margir lengstu vegalengdina.
Lesa meira
22.10.2010
Miðvikudaginn 20. október var 1.- 5. bekk boðið í menningarhúsið Hof
á Akureyri en þar fluttir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ævintýrið um Pétur og úlfinn eftir Sergei Prokofieff
Lesa meira
22.10.2010
Síðastliðinn þriðjudag hittust nemendur yngri deilda Grunnskólans í Fjallabyggð og tóku þátt í
Norræna skólahlaupinu. Með norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur, kennara og annað starfslið skólanna til þess að
æfa hlaup og auka við hreyfingu sína. Lögð er áhersla á að kynna nauðsyn þess að hreyfa sig og reyna á líkama sinn á
ýmsan hátt og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.
Lesa meira
03.10.2010
Alla daga er farið frá barnaskólahúsinu í Ólafsfirði kl. 8.20 og hefst kennsla í unglingadeild kl. 8.50.
Ferðir um göngin verða nokkrar daglega frá skólahúsinu Hlíðarvegi og ættu flestir nemendur að ná heimferð til
Ólafsfjarðar stuttu eftir að skóladegi þeirra lýkur. Heimferðir eru sem hér segir:
Mánudagur: kl. 12.50, 14.40 og 16.00
Þriðjudagur: kl. 13.50, 15.25 og 16.30
Miðvikudagur: kl. 12.50, 14.40 og 16.00
Fimmtudagur: kl. 13.50, 15.25 og 16.30
Föstudagur: kl. 12.50, 14.40 og 16.00
Fleiri ferðir eru í boði eins og sjá má á heimasíðu sveitarfélagsins http://www.fjallabyggd.is/
Lesa meira